1020.is - Alhliða ráðgjöf og þjónusta í upplýsingatækni 
1020.is er ráðgjafarfyrirtæki á sviði upplýsingatækni sem sinnir stórum og smáum viðskiptavinum og aðstoðar við úrlausn hvers kyns vandamála

Víðtæk ráðgjöf og sérhæfð aðstoð við upplýsingatæknimál fyrir einstaklinga og fyrirtæki

Nokkur dæmi:

- Þarfagreining -

Veistu ekki hvað þú þarft í upplýsingatæknimálum - eða hvert þú átt að leita?

Við hjálpum þér að greina þarfirnar og aðstoðum við að leita tilboða í t.d. tölvubúnað, vefsíðugerð og hýsingu eða skýjaþjónustu og meta kostnað. 

- Tæknimál -

Ertu í vandræðum með tölvu- og tæknimál? Eru gögnin þín örugg?

Við getum aðstoðað við uppsetningu, breytingar og bilanagreiningar. Tölvubúnaður, vefsíður, jaðartæki, nettengingar, snjalltæki, hýsingar, afritun o.fl.

- Textavinnsla -

Vantar þig aðstoð við að búa til texta, viðhalda eða lagfæra texta?

Við getum aðstoðað við greinaskrif, textavinnslu fyrir vefsíður og prófarkalestur. Getum einnig séð um reglulega efnisinnsetningu á vef og flutning efnis milli vefkerfa.

Um 1020.is

Valur Sæmundsson á og rekur 1020.is.

Ég er tölvunarfræðingur B.Sc. að mennt og með alþjóðlega IPMA D-vottun í verkefnastjórnun, auk þess að vera með kennsluréttindi í grunnskóla og framhaldsskóla. 

Ég hef starfað í upplýsingatæknigeiranum undanfarin 25 ár, komið að mjög fjölþættum verkefnum á þeim tíma og aflað mér reynslu á mjög breiðum grunni.

Einnig hef ég sinnt stærðfræðikennslu af og til, bæði í framhaldsskóla og í einkatímum, og hef reynslu úr blaðamennsku og prófarkalestri.
8957979
Akureyri
Leit
Website made with Kopage Website Builder Build a Free Website